Meginmál

Seðlabanki Íslands hækkar vexti (greinargerð til ríkisstjórnar og vaxtahækkun)

ATH: Þessi grein er frá 18. febrúar 2005 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentur frá og með 22. febrúar n.k., þ.e. úr 8,25% í 8,75%. Aðrir vextir bankans hækka um 0,5 prósentur frá 21. febrúar.

Í dag sendi Seðlabankinn greinargerð til ríkisstjórnarinnar í tilefni af því að nú í febrúar fór verðbólga út fyrir þolmörk eins og þau eru skilgreind í sameiginlegri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og bankans frá mars 2001. Í greinargerðinni, sem birt er á heimasíðu bankans í dag, eru færð rök fyrir ákvörðun bankastjórnar um að hækka stýrivexti nú.

Nr. 5/2005

18. febrúar 2005